Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Eignasafn 1

Um Eignasafn 1:

Eignasafn 1 er mjög áhættulítil leið sem fjárfestir eingöngu í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum.  Nafnávöxtun Eignasafns 1 getur því ekki orðið neikvæð, óháð því til hvaða tímabils er litið.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 1 eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggð innlán          0-100%
  • Verðtryggð innlán            0-100%

 

Fyrir hverja?

Eignasafn 1 hentar fjárfestum sem vilja taka mjög litla áhættu og njóta stöðugrar ávöxtunar.

Eftir þær miklu sviptingar sem hafa átt sér stað í fjármálalífinu á Íslandi óska sumir fjárfestar eftir því að hafa eins mikið öryggi og eins litla áhættu og þeir geta mögulega fengið þegar kemur að því að ávaxta fjármuni þeirra. 

Vextirnir eru breytilegir en vaxtabreytingar eiga sér almennt stað samhliða breytingu stýrivaxta.  Eignasafn 1 býður upp á sama öryggi og fjárfestar fá með því að ávaxta fjármuni á bankabók.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf