Um Eignasafn 2:
Eignasafn 2 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og í ríkisskuldabréfa. Meiri sveiflur eru á ríkisskuldabréfum en innlánum en samanborið við Eignasafn 1 má búast við hærri ávöxtun til lengri tíma litið.
Fjárfestingarheimildir Eignasafns 2 eru eftirfarandi:
- Óverðtryggð innlán 0-100%
- Verðtryggð innlán 0-100%
- Ríkisskuldabréf 0-50%
Fyrir hverja?
Eignasafn 2 hentar þeim sem vilja stöðuga ávöxtun og litla áhættu.
Eignasafn 2 byggir á innlánum auk ríkisskuldabréfum. Með því að fjárfesta í ríkisskuldabréfum á safnið að geta skilað hærri ávöxtun til lengri tíma en ef eingöngu væri fjárfest í innlánum.
Ríkisskuldabréf bera tvenns konar áhættu eins og önnur verðbréf. Annars vegar er um markaðsáhættu að ræða og hins vegar skuldaraáhættu.
Markaðsáhættan sem fylgir ríkisskuldabréfum felst í því að gengi ríkisskuldabréfa getur verið nokkuð flöktandi en með þessu flökti á að vera hægt að ná betri ávöxtun til lengri tíma. Skuldaraáhættan er talin mjög lítil þar sem skuldarinn er íslenska ríkið.




