Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Eignasafn 2

Um Eignasafn 2:

Eignasafn 2 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og í ríkisskuldabréfa.   Meiri sveiflur eru á ríkisskuldabréfum en innlánum en samanborið við Eignasafn 1 má búast við hærri ávöxtun til lengri tíma litið.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 2 eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggð innlán                 0-100%
  • Verðtryggð innlán                   0-100%
  • Ríkisskuldabréf                       0-50%

 

Fyrir hverja?

Eignasafn 2 hentar þeim sem vilja stöðuga ávöxtun og litla áhættu.

Eignasafn 2 byggir á innlánum auk ríkisskuldabréfum. Með því að fjárfesta í ríkisskuldabréfum á safnið að geta skilað hærri ávöxtun til lengri tíma en ef eingöngu væri fjárfest í innlánum.

Ríkisskuldabréf bera tvenns konar áhættu eins og önnur verðbréf.  Annars vegar er um markaðsáhættu að ræða og hins vegar skuldaraáhættu.

Markaðsáhættan sem fylgir ríkisskuldabréfum felst í því að  gengi ríkisskuldabréfa getur verið nokkuð flöktandi en með þessu flökti á að vera hægt að ná betri ávöxtun til lengri tíma. Skuldaraáhættan er talin mjög lítil þar sem skuldarinn er íslenska ríkið.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf