Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Eignasafn 3

Um Eignasafn 3:

Eignasafn 3 er leið þar sem fjárfest er í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og  ríkisskuldabréfum.  Einnig er heimilt að fjárfesta í erlendum skuldabréfum auk innlendra og erlendra hlutabréfa í takmörkuðum mæli.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 3 eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggð innlán                  0-100%
  • Verðtryggð innlán                    0-100%
  • Ríkisskuldabréf                        0-70%
  • Innlend/erlend hlutabréf           0-30%
  • Erlend skuldabréf                    0-15%

 

Fyrir hverja?

Eignasafn 3 hentar þeim fjárfestum sem fjárfesta til lengri tíma og þola nokkra sveiflu í ávöxtun.

Eignasafn 3 er áhættuminnsta safnið af þeim eignasöfnum sem heimila fjárfestingu í innlendum og erlendum hlutabréfum og erlendum skuldabréfum.

Hlutabréf og erlend skuldabréf mega þó aldrei vera meiri en 45% af heildareignum safnsins samanlagt.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf