Um Eignasafn 3:
Eignasafn 3 er leið þar sem fjárfest er í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og ríkisskuldabréfum. Einnig er heimilt að fjárfesta í erlendum skuldabréfum auk innlendra og erlendra hlutabréfa í takmörkuðum mæli.
Fjárfestingarheimildir Eignasafns 3 eru eftirfarandi:
- Óverðtryggð innlán 0-100%
- Verðtryggð innlán 0-100%
- Ríkisskuldabréf 0-70%
- Innlend/erlend hlutabréf 0-30%
- Erlend skuldabréf 0-15%
Fyrir hverja?
Eignasafn 3 hentar þeim fjárfestum sem fjárfesta til lengri tíma og þola nokkra sveiflu í ávöxtun.
Eignasafn 3 er áhættuminnsta safnið af þeim eignasöfnum sem heimila fjárfestingu í innlendum og erlendum hlutabréfum og erlendum skuldabréfum.
Hlutabréf og erlend skuldabréf mega þó aldrei vera meiri en 45% af heildareignum safnsins samanlagt.



