Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Eignasafn 4

Um Eignasafn 4:

Eignasafn 4 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og ríkisskuldabréfum.  Auk þess er heimild til fjárfestinga í erlendum skuldabréfum og innlendum og erlendum hlutabréfum.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 4 eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggð innlán                 0-100%
  • Verðtryggð innlán                   0-100%
  • Ríkisskuldabréf                       0-75%
  • Innlend/Erlend hlutabréf          0-60%
  • Erlend skuldabréf                   0-30%

 

Fyrir hverja?

Eignasafn 4 hentar þeim sem fjárfesta til lengri tíma og þola mikla sveiflu í ávöxtun.

Eignasafn 4 er stýring sem getur fjárfest alfarið í innlendum og erlendum hlutabréfum og erlendum skuldabréfum þegar markaðsaðstæður eru þannig.

Almennt á það við að því hærri ávöxtun sem fjárfestir óskar eftir að fá, þeim mun meiri áhættu þarf hann að taka. Til lengri tíma á að vera hægt að ná mun betri ávöxtun í Eignasafni 4 en ef fjármunir væru eingöngu í innlánum, en áhættan sem er tekin er meiri.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf