Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Eignasafn 5

Um Eignasafn 5:

Eignasafn 5 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og ríkisskuldabréfum.  Auk þess er heimild til fjárfestinga í erlendum skuldabréfum og hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 5 eru eftirfarandi:

  • Óverðtryggð innlán                 0-100%
  • Verðtryggð innlán                   0-100%
  • Ríkisskuldabréf                       0-100%
  • Innlend hlutabréf                   0-70%
  • Erlend hlutabréf                     0-70%
  • Erlend skuldabréf                   0-30%

 

Fyrir hverja:

Eignasafn 5 hentar þeim sem fjárfesta til lengri tíma og eru tilbúnir að taka töluverða áhættu í von um hærri ávöxtun.

Eignasafn 5 er það eignasafn sem hefur mestu fjárfestingarheimildir innan hvers eignaflokks. Möguleiki er á því að hafa allt safnið í ríkisskuldabréfum, allt safnið í hlutabréfum eða allt safnið í innlánum, hvort heldur sem er í verðtryggt eða óverðtryggt.

Þeir fjárfestar sem óska eftir hámarks ávöxtun taka meiri áhættu og Eignasafn 5 er sniðið fyrir þá fjárfesta.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf