Um Eignasafn 5:
Eignasafn 5 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og ríkisskuldabréfum. Auk þess er heimild til fjárfestinga í erlendum skuldabréfum og hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum.
Fjárfestingarheimildir Eignasafns 5 eru eftirfarandi:
- Óverðtryggð innlán 0-100%
- Verðtryggð innlán 0-100%
- Ríkisskuldabréf 0-100%
- Innlend hlutabréf 0-70%
- Erlend hlutabréf 0-70%
- Erlend skuldabréf 0-30%
Fyrir hverja:
Eignasafn 5 hentar þeim sem fjárfesta til lengri tíma og eru tilbúnir að taka töluverða áhættu í von um hærri ávöxtun.
Eignasafn 5 er það eignasafn sem hefur mestu fjárfestingarheimildir innan hvers eignaflokks. Möguleiki er á því að hafa allt safnið í ríkisskuldabréfum, allt safnið í hlutabréfum eða allt safnið í innlánum, hvort heldur sem er í verðtryggt eða óverðtryggt.
Þeir fjárfestar sem óska eftir hámarks ávöxtun taka meiri áhættu og Eignasafn 5 er sniðið fyrir þá fjárfesta.




