Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

arne_vagn_olsen
Arne Vagn Olsen
Forstöðumaður markaðs- og sölusviðs.

Arne Vagn Olsen er forstöðumaður markaðs- og sölusviðs Íslenskra verðbréfa. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1992 og B.Sc. í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 1997.


Árið 2001 hlaut Arne Vagn löggildingu í verðbréfamiðlun og árið 2004 lauk hann alþjóðlegu MBA-námi frá Copenhagen Business School. Hann starfaði á árunum 1996 til 1999 hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf., fyrst sem vinnslustjóri og síðar sem markaðsstjóri.


Árið 1999 réðst hann til starfa hjá Íslenskum verðbréfum hf. sem sjóðstjóri Hlutabréfasjóðs Íslands hf. og síðar sjóðstjóri áhættufjármuna.


Arne er fæddur árið 1972 og giftur Dagnýju Þóru Baldursdóttir iðjuþjálfa, saman eiga þau þrjár dætur.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf