Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

einar_ingimundarson
Einar Ingimundarson
Forstöðumaður lögfræðisviðs

Einar Ingimundarson er forstöðumaður lögfræðisviðs Íslenskra verðbréfa og hóf störf í maí 2008.  Hann er lögfræðingur (mag.jur) frá Háskóla Íslands 2007 og hefur einnig lokið BS-prófi í hagfræði frá sama skóla. Einar hlaut hdl. réttindi í nóvember 2009.


Áður en Einar hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum starfaði hann sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og þar áður sem fulltrúi hjá sýslumanninum á Akureyri.  Á árunum 2000-2002 starfaði hann á verðbréfasviði Búnaðarbanka Íslands hf. og hjá Fjármálaeftirlitinu vann hann samhliða námi 2004-2005.  


Einar er fæddur 1974 og er kvæntur Bryndísi Maríu Davíðsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf