Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

hafdis_elva_ingimarsdottir
Hafdís Elva Ingimarsdóttir
Ráðgjafi.

Hafdís Elva Ingimarsdóttir er ráðgjafi hjá  Íslenskum verðbréfum.   Hafdís  er fædd árið 1970 og lauk B.Sc.  í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1996.  Hún er með próf í verðbréfaviðskiptum frá Háskóla Íslands.


Á árunum 1996 til 2001 starfaði Hafdís hjá Fjárvangi (seinna Frjálsa Fjárfestingarbankanum) í Reykjavík.  Frá árinu 2001 til ársins 2009 starfaði hún sem viðskiptastjóri í eignastýringu hjá Íslandsbanka. 


Hafdís er í sambúð með Guðmundi Rúnari Guðmundssyni viðskiptafræðingi og eiga þau tvö börn.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf