Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

jon_helgi_petursson
Jón Helgi Pétursson
Framkvæmdastjóri Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hf.

Jón Helgi Pétursson er framkvæmdastjóri Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hf., sem er dótturfélag Íslenskra verðbréfa.


Jón Helgi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1994, B.Sc. í rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1997, MBA í stjórnun frá The University of Hull í Bretlandi 1998 og löggildingarnámi í verðbréfamiðlun frá Háskóla Íslands 2001.


Jón Helgi starfaði sem ráðgjafi hjá Rekstri og ráðgjöf Norðurlandi ehf. frá 1998-2000 og sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Höfðhverfinga á Grenivík frá 2000-2005. Hann hóf störf hjá Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf. í maí 2005.


Eiginkona Jóns Helga er Íris Þorsteinsdóttir leikskólakennari og eiga þau tvær dætur og einn son.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf