Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

kristin_sigurdardottir
Kristín Sigurðardóttir
Sérverkefni á bókhalds- og bakvinnslusviði

Kristín Sigurðardóttir sinnir sérverkefnum á bókhalds- og bakvinnslusviði hjá Íslenskum verðbréfum. Kristín er fædd árið 1966.


Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1988, sveinsprófi í klæðskurði 1995 og öðlaðist meistararéttindi sem klæðskeri 1997. Kristín útskrifaðist sem viðskiptafræðingur af fjármálasviði frá Háskólanum á Akureyri vorið 2007.


Kristín er gift Sigurði Aðils sölustjóra hjá Nýherja og eiga þau tvö börn.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf