Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

otto_biering_ottosson
Ottó Biering Ottósson
Sjóðstjóri eignastýringar.

Ottó Biering Ottósson er sjóðstjóri hjá Íslenskum verðbréfum. Ottó er fæddur árið 1974. Hann útskrifaðist sem vélfræðingur og stúdent árið 1997 og lauk sveinsprófi í vélsmíði árið 1999.


Ottó útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2000 og sem hagfræðingur með M.Sc.- gráðu frá Háskóla Íslands árið 2004.


Frá 2003-2006 starfaði Ottó sem kennari við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og sem verkefnisstjóri hjá Verðlagsstofu skiptaverðs frá 2004-2006.


Eiginkona Ottós er Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri og eiga þau þrjá syni.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf