
Nafn
Sævar Helgason
Starfsheiti
Framkvæmdastjóri.
Netfang
Aðrar upplýsingar
Sævar Helgason er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa og er fæddur árið 1973.
Sævar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1993, sveinsprófi í málaraiðn frá Verkmenntaskólanum á Akureyri vorið 1994, BS.- prófi frá rekstrarfræðideild Háskólans á Akureyri vorið 1997 og löggildingarnámi í verðbréfamiðlun frá Háskóla Íslands vorið 1998.
Sævar starfaði hjá Landsbréfum á Akureyri og síðar á fyrirtækja- og stofnanasviði Viðskiptastofu Landsbanka Íslands. Hann hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í júlí 1998.
Eiginkona Sævars er Sara Dögg Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur og eiga þau einn son og þrjár dætur.



