Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Starfsmenn

stefan_gunnlaugsson
Stefán Gunnlaugsson
Greiningarvinna á eignastýringarsviði.

Stefán B. Gunnlaugsson er sérfræðingur hjá Íslenskum verðbréfum. Stefán er fæddur árið 1970. Hann útskrifaðist sem sjávarútvegsfræðingur hjá Háskólanum á Akureyri 1995 og lauk MSc.- gráðu í fjármálahagfræði frá háskólanum í Stirling í Skotlandi 1997.


Frá 1997 til 2003 starfaði Stefán sem sérfræðingur hjá Landsbankanum á Akureyri. Frá 2003 hefur Stefán verið lektor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri.


Samhliða störfum sínum hjá ÍV er Stefán áfram lektor við Háskólann á Akureyri. Eiginkona Stefáns er Linda Benediktsdóttir og eiga þau eina dóttur.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf