Íslensk verðbréf bjóða upp á eignasöfn A, B og C sem eru sérsniðnar eignastýringarlausnir fyrir einstaklinga, stéttarfélög, fyrirtæki og fagfjárfesta. Eignasöfnin fjárfesta í innlánum, sjóðum og stökum verðbréfum eftir fyrirfram skilgreindum fjárfestingarheimildum.
Eignasöfnin eru laus til útborgunar með skömmum fyrirvara. Viðskiptavinir njóta ýmissa sérkjara hjá Íslenskum verðbréfum, svo sem afsláttar af söluþóknun sjóða og aðgangs að ráðgjöfum Íslenskra verðbréfa. Lágmarksfjárhæð í eignasöfnin eru 15 m.kr.
Um hver mánaðarmót er jafnframt gefinn út einblöðungur fyrir eignasöfn A, B og C þar sem sjá má hver eignasamsetning hverrar leiðar er. Nýjasta einblöðunginn má nálgast hér (pdf).
Minnum jafnframt á að hægt er að fá alla einblöðunga ÍV senda sjálfkrafa um hver mánaðarmót með því að skrá sig á póstlista hjá ÍV.
Nánari upplýsingar um Eignasafn A, B og C er að finna hér fyrir neðan.
Eignasafn A
Eignasafn A er fremur varfærið og fjárfestir að miklu leyti í verðbréfum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum. Fjárfestingastefnan heimilar takmarkaða fjárfestingu í hlutabréfum og öðrum innlendum og erlendum verðbréfum. Áhætta er takmörkuð og ávöxtun fremur stöðug.
Fjárfestingarstefna Eignasafns A er eftirfarandi:
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs |
20 til 100% |
| Önnur innlend skuldabréf | 0 til 30% |
| - Þar af önnur skuldabréf en með beinni eða óbeinni ábyrgð sveitarfélaga | 0 til 20% |
| - Á hvert einstakt sveitarfélag í beinni ábyrgð | 0 til 10% |
| - Á hvert fyrirtæki | 0 til 5% |
| Laust fé |
0 til 80% |
| Hlutabréf | 0 til 25% |
| - Þar af innlend hlutabréf |
0 til 15% |
| - Þar af í hverju félagi | 0 til 5% |
| Erlend skuldabréf |
0 til 10% |
Eignasafn B
Eignasafn B fjárfestir í verðbréfum með ábyrgð ríkissjóðs, innlánum og hefur auk þess heimild til að fjárfesta að verulegu leyti í hlutabréfum og öðrum innlendum og erlendum verðbréfum. Ávöxtun getur sveiflast nokkuð og er mælt með að fjárfestar horfi til nokkurra ára við mat á árangri.
Fjárfestingarstefna Eignasafns B er eftirfarandi:
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs |
0 til 100% |
| Önnur innlend skuldabréf | 0 til 40% |
| - Þar af önnur skuldabréf en með beinni eða óbeinni ábyrgð sveitarfélaga | 0 til 25% |
| - Á hvert einstakt sveitarfélag í beinni ábyrgð | 0 til 10% |
| - Á hvert fyrirtæki | 0 til 5% |
| Laust fé |
0 til 70% |
| Hlutabréf | 0 til 50% |
| - Þar af innlend hlutabréf |
0 til 30% |
| - Þar af í hverju félagi | 0 til 5% |
| Erlend skuldabréf |
0 til 25% |
Eignasafn C
Eignasafn C er áhættuminnsta eignasafnið af Eignasöfnum A, B og C þar sem einungis er fjárfest í skuldabréfum og innlánum. Rík áhersla er á verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs. Áhætta er mjög takmörkuð og ávöxtun tiltölulega stöðug.
Fjárfestingarstefna Eignasafns C er eftirfarandi:
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs |
30 til 100% |
| Önnur innlend skuldabréf | 0 til 30% |
| - Þar af önnur skuldabréf en með beinni eða óbeinni ábyrgð sveitarfélaga | 0 til 20% |
| - Á hvert einstakt sveitarfélag í beinni ábyrgð | 0 til 10% |
| - Á hvert fyrirtæki | 0 til 5% |
| Laust fé |
0 til 50% |
| Hlutabréf | Ekki heimilt |
| Erlend skuldabréf |
Ekki heimilt |
Þjónusta
Fjárfestar hafa á hverjum tíma aðgang að eignasafni sínu á vef www.iv.is þar sem hægt er að sjá eignastöðu sem og þau viðskipti sem hafa átt sér stað frá því að safnið var stofnað.
Fjárfestar hafa einnig aðgang að sérfræðingum Íslenskra verðbréfa í gegnum síma og tölvupóst og öllu jöfnu er hægt að koma á fundi með litlum fyrirvara.
Lögð er áhersla á persónuleg samskipti og horft til lengri tíma samstarfs á sviði ávöxtunar.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um eignasöfn A, B og C veita starfsmenn Íslenskra verðbréfa í síma 460 4700 eða með tölvupósti á netfangið iv@iv.is.
Kynningarfundir með stjórnum eða framkvæmdastjórum sjóða er jafnframt í boði endurgjaldslaust.