Eignasafn 2

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar,

  • undirsida8

Eignasafn 2

 

Eignasafn 2 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og í ríkisskuldabréfum.   Meiri sveiflur eru á ríkisskuldabréfum en innlánum en samanborið við Eignasafn 1 má búast við hærri ávöxtun til lengri tíma litið.

 

Fjárfestingarheimildir Eignasafns 2:

Eignaflokkur Fjárfestingarheimild
Óverðtryggð innlán
0 til 100%
Verðtryggð innlán 0 til 100%
Ríkisskuldabréf 0 til 50%

 

Fyrir hverja?

Eignasafn 2 hentar þeim sem vilja stöðuga ávöxtun og litla áhættu.

Eignasafn 2 byggir á innlánum auk ríkisskuldabréfa. Með því að fjárfesta í ríkisskuldabréfum á safnið að geta skilað hærri ávöxtun til lengri tíma en ef eingöngu væri fjárfest í innlánum.

Ríkisskuldabréf bera tvenns konar áhættu eins og önnur verðbréf.  Annars vegar er um markaðsáhættu að ræða og hins vegar skuldaraáhættu.

Markaðsáhættan sem fylgir ríkisskuldabréfum felst í því að  gengi ríkisskuldabréfa getur verið nokkuð flöktandi en með þessu flökti á að vera hægt að ná betri ávöxtun til lengri tíma. Skuldaraáhættan er talin mjög lítil þar sem skuldarinn er íslenska ríkið.

 

Eignasamsetning

Velta skuldabréf 10.084.342.279 isk Velta hlutabréf 81.686.926 isk Viðskipti dagsins 10.166.029.205 isk Uppfært 22/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina