Eignasafn 4 fjárfestir í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum og ríkisskuldabréfum. Auk þess er heimild til fjárfestinga í erlendum skuldabréfum og innlendum og erlendum hlutabréfum.
Fjárfestingarheimildir Eignasafns 4:
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Óverðtryggð innlán |
0 til 100% |
| Verðtryggð innlán | 0 til 100% |
| Ríkisskuldabréf | 0 til 75% |
| Innlend/erlend hlutabréf | 0 til 50% |
| Erlend skuldabréf |
0 til 30% |
Fyrir hverja?
Eignasafn 4 hentar þeim sem fjárfesta til lengri tíma og þola mikla sveiflu í ávöxtun.
Almennt á það við að því hærri ávöxtun sem fjárfestir óskar eftir að fá, þeim mun meiri áhættu þarf hann að taka. Til lengri tíma á að vera hægt að ná mun betri ávöxtun í Eignasafni 4 en ef fjármunir væru eingöngu í innlánum, en áhættan sem er tekin er meiri.
