Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf. Sjóðurinn er ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni til meðallangs eða langs tíma.
Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 5-7 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast nokkuð við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði. Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru húsbréf, húsnæðisbréf, íbúðabréf, spariskírteini, ríkisbréf og ríkisvíxlar.
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Ríkisvíxlar | 0 til 40% |
| Ríkisbréf | 0 til 70% |
| Spariskírteini ríkissjóðs | 0 til 50% |
| Íbúðabréf, húsbréf og húsnæðisbréf |
0 til 90% |
Fyrir hverja?
Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er sjóðurinn einkum ætlaður fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til millilangs eða langs tíma.
Einnig hentar sjóðurinn fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hans eru ríkistryggðar.
Við áskrift er veittur 50% afsláttur af þóknun við kaup. Enginn þóknun er tekin við sölu.
