Eignastýringarsafn ÍV - II er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Sjóðurinn er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf.
Fjárfestingarstefna
Áhersla er lögð á fjárfestingu í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum en einnig er heimilt að fjárfesta í skuldabréfum með ábyrgð sveitarfélaga, öðrum skuldabréfum og hlutabréfum, þó með takmörkunum á innlendum hlutabréfum og bréfum sérhvers félags.
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir | 30 til 100% |
| Innlend skuldabréf | 0 til 55% |
| Innlán | 0 til 50% |
| Innlend og erlend hlutabréf | 0 til 30% |
| Nánari sundurliðun fjárfestingarheimilda | |
| Skuldabréf með ábyrgð ríkissjóðs |
20 til 100% |
| Skuldabréf með ábyrgð sveitarfélaga |
0 til 20% |
| Innlán fjármálafyrirtækja |
0 til 60% |
| Önnur skuldabréf |
0 til 15% |
| Erlend skuldabréf |
0 til 15% |
| Hlutabréf innlend* | 0 til 20% |
| Hlutabréf erlend | 0 til 30% |
| Hámarkseign í hlutabréfum innl. og erl. | 30% |
* hámarkseign í einstöku félagi er 5%
Sjóðnum er heimilt að fjárfesta í öðrum sjóðum sem Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV rekur að hluta eða öllu leyti.
Fyrir hverja?
Eignastýringarsafn ÍV - II er góður kostur fyrir þá sem þola þó nokkrar sveiflur í von um hærri ávöxtun. Ávöxtun sjóðsins getur sveiflast nokkuð og er mælt með því að fjárfestar horfi til nokkurra ára við mat á árangri.
Sjóðurinn hentar bæði einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum.
Við áskrift er veittur 50% afsláttur af þóknun við kaup. Enginn þóknun er tekin við sölu.
