Ríkisskuldabréfasjóður ÍV er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf. Sjóðurinn var stofnaður árið 2002 og er ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni til lengri tíma.
Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 6-12 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast töluvert við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru húsbréf, húsnæðisbréf, íbúðabréf, spariskírteini, ríkisbréf og ríkisvíxlar.
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Ríkistryggð verðbréf |
0 til 100% |
Fyrir hverja?
Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er sjóðurinn einkum ætlaður fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til lengri tíma.
Einnig hentar sjóðurinn fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hans eru ríkistryggðar.
Við áskrift er veittur 50% afsláttur af þóknun við kaup. Enginn þóknun er tekin við sölu.
