Sjóðir í slitaferli

Í kjölfar falls íslenskra banka og margra fjármálafyrirtækja haustið 2008 hafa tveir sjóðir Íslenskra verðbréfa hafið slitaferli.  Ferlið kemur til þar

  • undirsida8

Sjóðir í slitaferli

Í kjölfar falls íslenskra banka og margra fjármálafyrirtækja haustið 2008 hafa tveir sjóðir Íslenskra verðbréfa hafið slitaferli.  Ferlið kemur til þar sem undirliggjandi eignir sjóðsins eru óseljanlegar.  Um er að ræða sjóðina Peningamarkaðssjóður ÍV og Skuldabréfasjóður ÍV.

Þessu til viðbótar hefur Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. umsjón með slitaferli tveggja sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf.  Um er að ræða sjóðina Stuttur skuldabréfasjóður og Langur skuldabréfasjóður.

Á þessari síðu birtum við fréttir um ofangreinda sjóði.  Hafir þú spurningar er þér velkomið að hafa samband við Íslensk verðbréf í síma 460 4700.  Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið iv@iv.is.

Jafnframt bendum við á að hægt er að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu þegar nýjar fréttir um valda sjóði birtast á heimasíðu Íslenskra verðbréfa.

 

Hvað þýðir að sjóður sé í slitaferli?

Sjóður fer í slitaferli í samráði við Fjármálaeftirlitið þegar ljóst er að eignir hans eru óseljanlegar.  Þetta á við um marga sjóði sem fjárfestu í skuldabréfum íslenskra fyrirtækja fyrir hrunið haustið 2008.

Sjóður í slitaferli greiðir sjóðfélögum út í samræmi við hlutfallslega eign þeirra eftir því sem eignir sjóðsins innheimtast eða eru seldar. Þegar engar eignir eru eftir í viðkomandi sjóði er honum slitið.

Lokað er fyrir kaup og sölu hlutdeildarskírteina sjóða sem eru í slitaferli.

 

Stuttur skuldabréfasjóður (áður hjá Rekstrarfélagi SPRON hf.)

3. febrúar 2012
Gengi sjóðsins Lækkaði um 1,1% í mánuðinum.  Lækkunin skýrist af aukinni niðurfærslu vegna Bakkavarar.

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í N1, Stoðum, Eimskipafélagi Íslands, Existu, Atorku og Bakkavör.  Sjóðurinn hefur þegar selt hlutabréf sín í Eimskipafélaginu og Stoðum.  Einnig hefur sjóðurinn selt þær eignir sem hann fékk í sinn hlut við nauðasamning Existu. Þar til viðbótar hafa nauðasamningar Eglu verið samþykktir og búið að greiða þá að fullu.

Næsta greiðsla til sjóðfélaga er áætluð næsta vor takist ekki að selja eignir fyrir þann tíma.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar verðmæti einstakra eigna skýrist.

Greiðslur úr Stuttum skuldabréfasjóði hafa verið sem hér segir:

  • 10. febrúar 2009 voru greiddar út 20,70% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 24. júní 2009 voru greiddar út 14,64% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 17. september 2009 voru greiddar út 5,11% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 19. mars 2010 voru greiddar út 9,64% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 03. desember 2010 voru greiddar út 28% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 28. febrúar 2011 voru greidd út 5,7% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 4. október 2011 voru greidd út 11,3% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.


Langur skuldabréfasjóður (áður hjá Rekstrarfélagi SPRON hf.)

3. febrúar 2012

Gengi sjóðsins lækkaði um 0,4% í mánuðinum.  Lækkunin skýrist af aukinni niðurfærslu vegna Bakkavarar.

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í N1, Stoðum, Eimskipafélagi Íslands, Existu, Atorku og Bakkavör.  Sjóðurinn hefur þegar selt hlutabréf sín í Eimskipafélaginu og Stoðum.  Einnig hefur sjóðurinn selt þær eignir sem hann fékk í sinn hlut við nauðasamning Existu. Þar til viðbótar hafa nauðasamningar Eglu verið samþykktir og búið að greiða þá að fullu.

Næsta greiðsla til sjóðfélaga er áætluð næsta vor takist ekki að selja eignir fyrir þann tíma.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar verðmæti einstakra eigna skýrist.

Greiðslur úr Löngum skuldabréfasjóði hafa verið sem hér segir:

  • 24. júní 2009 voru greiddar út 24,89% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 17. september 2009 voru greiddar út 12,61% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 18. mars 2010 voru greiddar út 7,45% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 02. desember 2010 voru greiddar út 25% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 24. febrúar 2011 voru greiddar út 9,0% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 03. október 2011 voru greiddar út 7,4% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

 

Peningamarkaðssjóður ÍV

3. febrúar 2012

Gengi sjóðsins lækkaði um 2,1% í mánuðinum.  Lækkunin skýrist af aukinni niðurfærslu vegna Bakkavarar.

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum, Eimskipafélagi Íslands, Existu, Atorku og Bakkavör.  Sjóðurinn hefur þegar selt hlutabréf sín í Eimskipafélaginu og Stoðum.  Einnig hefur sjóðurinn selt þær eignir sem hann fékk í sinn hlut við nauðasamning Existu. Þar til viðbótar hafa nauðasamningar Eglu verið samþykktir og búið að greiða þá að fullu.

Næsta greiðsla til sjóðfélaga er áætluð næsta vor takist ekki að selja eignir fyrir þann tíma.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar mál skýrast varðandi verðmæti einstakra eigna.

Greiðslur úr Peningamarkaðssjóði ÍV hafa verið sem hér segir:

  • 12. júní 2009 voru greiddar út 6,31% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 18. nóvember 2009 voru greiddar út 14,59% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 11. júní 2010 voru greiddar út 5,60% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 07. desember 2010 voru greiddar út 20% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 10. maí 2011 voru greiddar út 20,4% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 30. september 2011 voru greiddar út 25,6% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

 

Skuldabréfasjóður ÍV

3. febrúar 2012

Gengi sjóðsins lækkaði um 3,0% í mánuðinum.  Lækkunin skýrist af aukinni niðurfærslu vegna Bakkavarar.

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum, Bakkavör, Atorku og Teymi auk stofnfjárbréfa í Sparisjóði Bolungarvíkur. Þar til viðbótar hafa nauðasamningar Eglu verið samþykktir og búið að greiða þá að fullu. Sjóðurinn hefur þegar selt öll hlutabréf sín í Stoðum.

Næsta greiðsla til sjóðfélaga er áætluð næsta vor takist ekki að selja eignir fyrir þann tíma.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar mál skýrast varðandi verðmæti einstakra eigna.

Greiðslur úr Skuldabréfasjóði ÍV hafa verið sem hér segir:

  • 12. janúar 2009 voru greiddar út 13,06% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 5. júní 2009 voru greiddar út 11,97% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 17. september 2009 voru greiddar út 15,27% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 17. nóvember 2009 voru greiddar út 17,25% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 15. september 2010 voru greiddar út 5,60% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 9. desember 2010 voru greiddar út 12% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 22. febrúar 2011 voru greiddar út 20,5% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
  • 24. ágúst 2011 voru greiddar út 25,5% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.
Velta skuldabréf 16.833.851.612 isk Velta hlutabréf 174.433.544 isk Viðskipti dagsins 17.008.285.156 isk Uppfært 06/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina