Skammtímasjóður ÍV er fjárfestingarsjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf.
Sjóðurinn er ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja nýta þá vexti sem bjóðast á innlánum auk þess að eiga kost á umframávöxtun sem ríkistryggð bréf gætu gefið. Enginn binditími er á fjárfestingu í sjóðnum.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er að lágmarki 50% í innlánum og þess utan í stuttum ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru ríkisbréf, ríkisvíxlar og íbúðarbréf.
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Ríkistryggð verðbréf |
0 til 50% |
| Innlán fjármálafyrirtækja |
50 til 100% |
| Óskráð verðbréf |
0 til 10% |
Fyrir hverja?
Skammtímasjóður ÍV hentar hvort heldur sem er fyrir skemmri eða lengri tíma fjárfestingu. Þó er mælst til þess að ekki sé fjárfest fyrir skemmra tímabil en 2 vikur í senn, enda getur sjóðurinn lækkað á milli daga.
