Af hverju Íslensk verðbréf

Íslensk verðbréf hafa sérstöðu á íslenska fjármálamarkaðinum sem byggist á eftirfarandi þáttum: Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki. 

  • undirsida10

Af hverju Íslensk verðbréf?

Íslensk verðbréf hafa sérstöðu á íslenska fjármálamarkaðinum sem byggist á eftirfarandi þáttum:

  • Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki.  Það þýðir að öll starfsemi félagsins miðar að því að ná hámarksárangri á sviði eignastýringar.  Félagið sinnir ekki útlánastarfsemi, fyrirtækjaráðgjöf eða annarri álíka þjónustu sem tekur fókusinn af eignastýringu.

 

  • Íslensk verðbréf stunda ekki beinar fjárfestingar fyrir eigin reikning, með öðrum orðum: félagið keppir ekki við viðskiptavini sína um þau tækifæri sem bjóðast á markaðinum hverju sinni.   Með þessu er komið í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra milli félagsins annars vegar og viðskiptavina hins vegar.

 

  • Íslensk verðbréf eru óháð eignastýringarfyrirtæki í eigu lífeyrissjóða, sparisjóða og hluta starfsmanna.  Með öðrum orðum er félagið sjálfstætt og því ekki á neinn hátt bundið hagsmunum stærri aðila á markaðinum.

 

Þessir þrír þættir eru grunnur að starfsemi félagsins og forsenda þess að það njóti trausts á fjármálamarkaðinum.   Hér er að finna frekari upplýsingar um starfsemi Íslenskra verðbréfa hf.

Velta skuldabréf 10.084.342.279 isk Velta hlutabréf 81.686.926 isk Viðskipti dagsins 10.166.029.205 isk Uppfært 22/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina