Gildin okkar

Gildi Íslenskra verðbréfa leggja grunn að þeirri fyrirtækjamenningu sem við viljum að einkenni starfsemi félagsins.  Gildin, sem eru fimm talsins, eru

  • undirsida4

Gildi Íslenskra verðbréfa

Gildi Íslenskra verðbréfa leggja grunn að þeirri fyrirtækjamenningu sem við viljum að einkenni starfsemi félagsins.  Gildin, sem eru fimm talsins, eru talin upp hér að neðan.

Frá haustinu 2010 hafa Íslensk verðbréf jafnframt birt auglýsingar með Jóhanni Inga Gunnarssyni, þar sem gildin okkar eru inntak auglýsinganna.  Nánari upplýsingar um þessar auglýsingar er að finna hér.

 

Góður árangur

Við erum sannfærð um að góður árangur er forsenda vaxtar og velgengni.  Við setjum okkur skýr markmið, mörkum leiðir til þess að ná markmiðum okkar og metum árangur út frá þessu tvennu. Við tökumst á við áskoranir með það staðfastlega í huga að ná góðum árangri.

 

Framúrskarandi þjónusta

Störf okkar miða að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og leitum ávallt leiða til að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Okkur er umhugað um viðskiptavini og komum fram við þá af heiðarleika og virðingu.  Við erum þekkingarfyrirtæki og tileinkum okkur þekkingu og hæfni í samskiptum og þjónustu við viðskiptavini.

 

Traust

Við einsetjum okkur að koma fram af heiðarleika, virðingu og ábyrgð. Við byggjum upp langtímasamband við viðskiptavini og hvert við annað, samband sem byggir á gagnkvæmu trausti. Áunnið traust er takmark okkar.

 

Liðsheild

Við erum samheldinn hópur ólíkra einstaklinga sem mynda sterka liðsheild.  Samskipti okkar byggja á gagnkvæmri virðingu, samvinnu og alúð.  Við styðjum hvert annað, við hvetjum og hrósum hvert öðru. Saman tökum við ákvarðanir sem þjóna hagsmunum viðskiptavina og fyrirtækisins.

 

Frumkvæði

Við erum vakandi og móttækileg fyrir tækifærum og nýjum lausnum og leggjum áherslu á skapandi hugsun. Við framkvæmum hlutina en bíðum ekki eftir því að aðrir framkvæmi þá fyrir okkur. Við tileinkum okkur einkunnarorðin hvað get ég gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini og fyrirtækið.

Velta skuldabréf 10.084.342.279 isk Velta hlutabréf 81.686.926 isk Viðskipti dagsins 10.166.029.205 isk Uppfært 22/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina