Íslensk verðbréf

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og fagnar því 25 ára afmæli á

  • undirsida7

Um okkur

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og fagnar því 25 ára afmæli á árinu 2012. Starfsmenn eru 20 talsins og búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á verðbréfamarkaði samfara fjölbreyttri menntun.

Félagið er til heimilis að Strandgötu 3, Akureyri og skrifstofan er opin frá kl. 9 til 16 alla virka daga. Íslensk verðbréf eru jafnframt með skrifstofu í Reykjavík að Sigtúni 42 sem þjónar viðskiptavinum félagsins á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofan er opin frá 9 til 12 og 12:30 til 16. Starfsmenn þar eru Arnbjörn Ingimundarson, Helga Sigurðardóttir og Stefán Þórðarson.

Viðskiptavinir Íslenskra verðbréfa eru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, tryggingarfélög, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar. Eignir í stýringu námu um 130 milljörðum króna í árslok 2011.

 

Sérstaða

  • Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki. Það þýðir að öll starfsemi félagsins miðar að því að ná hámarksárangri á sviði eignastýringar. Félagið sinnir ekki útlánastarfsemi, fyrirtækjaráðgjöf eða annarri álíka þjónustu heldur einbeitir sér að öflugri eignastýringu.
  • Einu fjárfestingar Íslenskra verðbréfa fyrir eigin reikning eru í sjóðum félagsins. Með öðrum orðum keppir félagið ekki við viðskiptavini sína um þau tækifæri sem bjóðast á markaðinum hverju sinni. Með þessu er komið í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra milli félagsins annars vegar og viðskiptavina hins vegar.

 

Stjórn

Stjórn félagsins skipa Magnús Gauti Gautason (stjórnarformaður), Stefán Halldórsson (varaformaður) og Halldór Halldórsson. Stjórnin samþykkti á fundi sínum 21. september 2011 stjórnháttaryfirlýsingu sem hægt er að finna hér (pdf).

 

Eignastýring fyrir einstaklinga og fagfjárfesta

Íslensk verðbréf bjóða upp á fjölbreytta eignastýringu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og fagfjárfesta þar sem þess er gætt að hver og einn finni eignastýringarleið við sitt hæfi. Hér er að finna nánari upplýsingar um eignastýringu ÍV.

 

Mannauður

Hjá Íslenskum verðbréfum starfar hópur fólks með mikla reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Meðalaldur starfsmanna í lok árs 2010 er 39 ár og stór hluti þeirra hefur unnið hjá félaginu í 10 ár eða lengur.

Menntun starfsmanna er jafnframt fjölbreytt, þ.á.m. hagfræðimenntun, lögfræðimenntun, viðskiptafræðimenntun og sjávarútvegsfræðimenntun svo fátt eitt sé nefnt.

Hér er að finna nánari upplýsingar um starfsfólk Íslenskra verðbréfa

Velta skuldabréf 9.365.990.265 isk Velta hlutabréf 137.777.000 isk Viðskipti dagsins 9.503.767.265 isk Uppfært 18/05/2012 kl. 11:20

Svæði

Innskráning viðskiptavina