Arnbjörn Ingimundarson er sjóðstjóri hjá Íslenskum verðbréfum. Arnbjörn er fæddur 1976. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1996, BA-prófi í hagfræði frá Boston College 1999 og M.Sc.-prófi í fjármálum frá sama skóla 2003. Hann lauk einnig Chartered Financial Analyst (CFA) prófi árið 2005.
Arnbjörn starfaði við greiningu hjá FBA og Íslandsbanka á árunum 1999 til 2001. Á árunum 2004 til 2011 starfaði hann við sjóðstýringu hjá Vitka, eigin eignastýringafyrirtæki, í Bandaríkjunum.
Arnbjörn hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í janúar 2012. Eiginkona hans er Margaret Ingimundarson og eiga þau eina dóttur.