Björn Gíslason er sjóðstjóri hjá Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf, sem er dótturfélag Íslenskra verðbréfa hf. Björn er fæddur 1975. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1995, sveinsprófi í ljósmyndun árið 1997.
1997 lauk Björn einnig B.Sc.hon.- gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2002 og M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2011. Björn lauk jafnframt við löggildingu í verðbréfaviðskiptum árið 2009.
Björn starfaði sem ráðgjafi hjá Maritech árið 2002 og sem verkefnisstjóri hjá Impru nýsköpunarmiðstöð 2003-2007.
Eiginkona Björns er Herdís Björk Þórðardóttir myndlistarmaður og eiga þau tvo syni.