Einar Ingimundarson er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa. Hann hóf störf hjá félaginu í maí 2008 og var ráðinn framkvæmdastjóri í ágúst 2011. Einar er lögfræðingur (mag.jur) frá Háskóla Íslands 2007 og hefur einnig lokið BS-prófi í hagfræði frá sama skóla. Einar hlaut hdl. réttindi í nóvember 2009.
Áður en Einar hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum starfaði hann sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og þar áður sem fulltrúi hjá sýslumanninum á Akureyri. Á árunum 2000-2002 starfaði hann á verðbréfasviði Búnaðarbanka Íslands hf. og hjá Fjármálaeftirlitinu vann hann samhliða námi 2004-2005.
Einar er fæddur 1974 og er kvæntur Bryndísi Maríu Davíðsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn.