Einar Ingimundarson

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar,

  • undirsida10

Einar Ingimundarson

einar-ingimundarson
Einar Ingimundarson

Einar Ingimundarson er framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.  Hann hóf störf hjá félaginu í maí 2008 og var ráðinn framkvæmdastjóri í ágúst 2011.  Einar er lögfræðingur (mag.jur) frá Háskóla Íslands 2007 og hefur einnig lokið BS-prófi í hagfræði frá sama skóla. Einar hlaut hdl. réttindi í nóvember 2009.

Áður en Einar hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum starfaði hann sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og þar áður sem fulltrúi hjá sýslumanninum á Akureyri.  Á árunum 2000-2002 starfaði hann á verðbréfasviði Búnaðarbanka Íslands hf. og hjá Fjármálaeftirlitinu vann hann samhliða námi 2004-2005.

Einar er fæddur 1974 og er kvæntur Bryndísi Maríu Davíðsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau fjögur börn.

Velta skuldabréf 16.833.851.612 isk Velta hlutabréf 174.433.544 isk Viðskipti dagsins 17.008.285.156 isk Uppfært 06/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina