Jón Ingvi starfar við sérhæfðar fjárfestingar. Hann lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2007, Cand.scient. prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og M.Sc. prófi í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1998. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1991 og sveinsprófi í húsasmíði 1992.
Jón Ingvi starfaði sem sérfæðingur í þróun hugbúnaðar og fjarskiptatækni hjá Hewlett-Packard í Danmörku og Frakklandi á árunum 1999 til 2004. Á árunum 2004 til 2009 starfaði hann við áhættustýringu og sérhæfðar fjárfestingar hjá Kaupþingi Banka og Landsvaka hf.
Frá 2009 til 2011 starfaði hann við ráðgjöf tengda framtaksfjárfestingum og hjá Saga Fjárfestingarbanka við eignaumsýslu og síðar sem framkvæmdastjóri áhættustýringar og reksturs. Hann hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í nóvember 2011.
Eiginkona Jóns Ingva er Katrín Káradóttir viðskiptafræðingur og eiga þau þrjá syni.