Styrkir Íslenskra verðbréfa

Íslensk verðbréf leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð m.a. með því að styðja við bakið á íþróttafélögum og ýmissi forvarnartengdri starfsemi. Á árunum

  • undirsida12

Fjárfestum í framtíðinni

Íslensk verðbréf leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð m.a. með því að styðja við bakið á íþróttafélögum og ýmissi forvarnartengdri starfsemi.

Á árunum 2011 til 2014 hafa Íslensk verðbréf einsett sér að styrkja sérstaklega við bakið á knattspyrnuiðkun enda telur félagið að með því sé bæði verið að hvetja til hollrar og góðrar hreyfingar auk þess sem forvarnargildi íþrótta er óumdeilanlegt.  Til að sækja um styrk hjá Íslenskum verðbréfum þarf að fylla út umsóknarform.

Helstu aðilar sem Íslensk verðbréf styrkja eru talin upp hér að neðan.

 

Blakdeild KA

Íslensk verðbréf eru aðalstyrktaraðilar Blakdeildar KA á árunum 2010 til 2013.  Á árinu 2010 urðu KA deildar-, Íslands- og bikarmeistarar í fyrsta skipti í sögu félagsins. Karlaliðið hafði þá ekki unnið titil síðan 1994. Þar áður voru KA meistarar '89 og '90.

Veturinn 2010-2011 varð KA aftur Íslandsmeistari í blaki auk þess að vinna alla aðra titla sem í boði voru.

Blakdeild_KA

 

 

Meistaraflokkur Þórs/KA í knattspyrnu

Íslensk verðbréf hf. er einn af aðalstyrktaraðilum meistarflokks Þórs/KA í kvennaflokki í knattspyrnu á árunum 2008 til 2011.  Leikmannahópur Þórs/KA telur um 30 leikmenn og er að mestu byggt upp á heima stúlkum.

Árangur Þórs/KA hefur farið stigvaxandi á síðustu árum. Árið 2006 lauk liðið keppni í  7. sæti úrvalsdeildar með 3 stig en árið 2007 varð 8. sæti í deildinni staðreynd og náði liðið að hala inn 13 stigum. Liðið náði svo besta árangri sem það hefur náð frá sameiningu, leiktíðina 2008 en þá lauk liðið keppni í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.

Til gamans má geta þess að Rakel Hönnudóttir aðal markaskorari liðsins er fastamaður í A- landsliði Íslands. Hún var kjörin efnilegasti leikmaður Landsbankadeildar kvenna árið 2007 og hlaut silfurskóinn árið 2008.

Til viðbótar þessu er liðið með mjög sterkan 2. flokk þar sem tvær stúlkur hafa verið í U-17 og U-19 ára landsliði Íslands. Árið 2007 varð t.d. liðið Vísabikarmeistari eftir sigur á KR á Akureyrarvelli.

Árið 2008 komst liðið í úrslitaleikinn en beið lægri hlut gegn Breiðablik á Kópavogsvelli, þess má geta að liðið lauk keppni í A-deild í 3. sæti.

Vorið 2009 gerði liðið sér lítið fyrir og vann Lengjubikarinn í A-deild í úrslitaleik á móti Stjörnunni sem verður að teljast frábær árangur.

Þjálfarar liðsins eru Dragan Stojanovic og Siguróli Kristjánsson.

 

 

Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri

Íslensk verðbréf hf. hefur verið einn af aðalstyrktaraðilum unglingaráðs knattspyrnudeildar Þórs frá árinu 2008 og gildir núverandi samningur til ársins 2014.

Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs er fyrirmyndarfélag ÍSÍ og hefur það yfirumsjón með starfi yngri flokka félagsins, annast m.a. ráðningar þjálfara og markar stefnu fyrir starfsemi yngri flokka félagsins í knattspyrnu.

Verðlaunahafar á lokahófi unglingaráðs Þórs 2008

Unglingaráð Þórs hefur markað sér knattspyrnu- og uppeldisstefnu þar sem félags-, íþrótta- og uppeldisleg markmið eru höfð að leiðarljósi.

Í stefnunni er lögð áhersla á ánægju af knattspyrnuiðkun, markvissa áætlanagerð og árangur.

Lögð er áhersla á góð tengsl við foreldra iðkenda, vímuvarnir og fjölbreytta félagsstarfsemi í öllum flokkum, m.a. til að vinna gegn brottfalli úr íþróttaiðkun.

Yfir vetrarmánuðina eru iðkendur um fjögur hundruð og um fimm hundruð yfir sumartímann. Iðkendum hefur fjölgað ár frá ári.

Nánari upplýsingar um starf unglingaráðs má finna á heimasíðu Þórs

 

 

Yngriflokkaráð knattspyrnudeildar KA

Íslensk verðbréf hf. er aðalstyrktaraðili yngriflokkaráðs KA í knattspyrnu á árunum 2008 til 2011.  Yngriflokkaráð Knattspyrnufélags Akureyrar í knattspyrnu hefur yfirumsjón með rekstri yngri flokka félagsins.

Á fjórða hundrað börn og unglingar á aldrinum fjögurra til sextán ára - bæði stelpur og strákar - æfðu knattspyrnu hjá KA  sumarið 2008.

Yfir vetrarmánuðina eru iðkendur á þriðja hundrað. Iðkendum hefur fjölgað ár frá ári. KA er fyrirmyndarfélag ÍSÍ, sem leggur félaginu ríkar skyldur á herðar varðandi menntun þjálfara, jafnrétti og margt fleira.

Allar nánari upplýsingar um starf yngri flokka KA í knattspyrnu er að finna á heimasíðu þeirra http://ka.fun.is/

Velta skuldabréf 10.084.342.279 isk Velta hlutabréf 81.686.926 isk Viðskipti dagsins 10.166.029.205 isk Uppfært 22/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina