Íslensk verðbréf hafa sérstöðu á íslenska fjármálamarkaðinum sem byggist á eftirfarandi þáttum:
- Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki. Það þýðir að öll starfsemi félagsins miðar að því að ná hámarksárangri á sviði eignastýringar. Félagið sinnir ekki útlánastarfsemi, fyrirtækjaráðgjöf eða annarri álíka þjónustu sem tekur fókusinn af eignastýringu.
- Íslensk verðbréf stunda ekki beinar fjárfestingar fyrir eigin reikning, með öðrum orðum: félagið keppir ekki við viðskiptavini sína um þau tækifæri sem bjóðast á markaðinum hverju sinni. Með þessu er komið í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra milli félagsins annars vegar og viðskiptavina hins vegar.
- Íslensk verðbréf eru óháð eignastýringarfyrirtæki í eigu lífeyrissjóða, sparisjóða og hluta starfsmanna. Með öðrum orðum er félagið sjálfstætt og því ekki á neinn hátt bundið hagsmunum stærri aðila á markaðinum.
Þessir þrír þættir eru grunnur að starfsemi félagsins og forsenda þess að það njóti trausts á fjármálamarkaðinum. Hér er að finna frekari upplýsingar um starfsemi Íslenskra verðbréfa hf.



