Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hafa tekið saman upplýsingar um helstu atriði sem viðskiptavinir spyrja um.  Við hvetjum áhugasama til að koma ábendingum um

Algengar spurningar og svör

Íslensk verðbréf hafa tekið saman upplýsingar um helstu atriði sem viðskiptavinir spyrja um.  Við hvetjum áhugasama til að koma ábendingum um umbætur til okkar á netfangið iv@iv.is eða með símtali í 460-4700.

 

Hvað er eignastýring?

Í grunninn felur eignastýring í sér að viðskiptavinur felur Íslenskum verðbréfum umsjá eignasafns síns innan fjárfestingarstefnu sem samþykkt er í upphafi stýringar.  Hlutverk Íslenskra verðbréfa er að fjárfesta innan fjárfestingarstefnu á hverjum tíma með það að markmiði að hámarka ávöxtun viðskiptavinar.  Nánari upplýsingar um eignastýringu ÍV er að finna hér.

 

Hvað er umsýsluþóknun?

Umsýsluþóknun er greidd fyrir eignastýringu. Umsýsluþóknun fyrir 10-20 milljón króna (mkr.) safn er 0,50% á ári, fyrir 20-50 mkr. safn 0,4% á ári og fyrir 50 mkr. og hærra er umsýsluþóknunin 0,3% á ári.

 

Hvað er viðskiptaþóknun?

Þóknun fyrir kaup og sölu hlutabréfa er 1% og er lágmarksþóknun kr. 3000.

Þóknun fyrir kaup og sölu víxla og skuldabréfa er á bilinu frá 0,25% til 0,6%. Fer þóknunin eftir eðli bréfanna, þ.e hvort þau eru ríkistryggð eða ekki og einnig eftir lánstíma bréfanna. Lágmarksþóknun er kr. 3000.

Fyrir aðila í eignastýringu er veittur 50% afsláttur af mismun á kaup- og sölugengi verðbréfasjóða og fjárfestingasjóða. Þegar fært er á milli sjóða er veittur 75% afsláttur . Aðilar í eignastýringu fá afslátt af viðskiptum með hlutabréf og skuldabréf.

 

Hvað er verðbréfasjóður?

Verðbréfasjóður er safn skuldabréfa, hlutabréfa eða annarra auðseljanlegra verðbréfa. Fjárfestar geta keypt hlutdeildasrskírteini í slíkum verðbréfasjóðum og eignast þar með hlut í mörgum tegundum verðbréfa. 

 

Hver er lágmarksupphæðin sem ég get fjárfest fyrir?

Lágmarksupphæð fyrir einstök kaup í sjóðum ÍV er kr. 3.000,-  Lágmarksupphæð fyrir áskrift í sjóðum ÍV er kr. 3.000,-  Jafnframt er viðskiptavinum boðið upp á eignastýringu þar sem hægt er að velja um fimm fjárfestingarleiðir.  Lágmarksfjárhæð fyrir slíka þjónustu er 1,5 mkr.

 

Get ég keypt sjóði í áskrift?

Hægt er að kaupa áskrift að sjóðum Íslenskra verðbréfa. Lágmarksupphæð á mánuði er kr. 3.000. Hvenær mánaðarins innborgunin á sér stað og tíðni innborgana ræðst alfarið af óskum viðskiptavinar.  Smelltu hér til að fjárfesta eða skrá í áskrift.

 

Hvað er áhættudreifing?

Þegar fjárfest er í verðbréfum margra fyrirtækja/skuldara er áhættunni með fjárfestingunni dreift á mörg félög. Ef verð á einu bréfi í stóru safni lækkar mikið hefur það ekki eins mikil áhrif á heildarsafnið og það hefði gert ef fjárfest hefði verið í einu bréfi.

 

Hver er munurinn á verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum?

Verðtryggð innlán bera almennt lægri vexti en óverðtryggð innlán en þó bætast verðbætur við mánaðarlega í samræmi við verðbólgu viðkomandi mánaðar (getur einstaka sinnum virkað til lækkunar).  Með öðrum orðum halda verðtryggðir innlánsreikningar verðgildi sínu þrátt fyrir verðlagshækkanir.

 

Vilt þú bæta við spurningu?  Sendu okkur línu á iv@iv.is.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf