Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem þjónustar einstaklinga, félög og fagfjárfesta um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og er því eitt elsta starfandi fjármálafyrirtæki landsins.
Skrifstofa félagsins er að Strandgötu 3 á Akureyri og skrifstofan er opin frá 9 til 16. Jafnframt eru Íslensk verðbréf með skrifstofu í Reykjavík sem er til húsa að Sigtúni 42. Nánari upplýsingar um Íslensk verðbréf er að finna hér .
Almennt um eignastýringu Íslenskra verðbréfa
Eignastýring felur í sér að viðskiptavinur eftirlætur Íslenskum verðbréfum að fjárfesta eignasafni viðkomandi innan fyrirfram samþykktrar fjárfestingarstefnu beggja aðila. Hlutverk Íslenskra verðbréfa er að vakta eignasafn viðskiptavinar og bregðast við breyttum aðstæðum á markaði með það að markmiði að hámarka ávöxtun eignasafnsins.
Fimm eignasöfn í boði
Eignastýring Íslenskra verðbréfa býður upp á fimm eignasöfn með mismunandi fjárfestingarstefnur. Eignasöfnin henta bæði einstaklingum sem og stærri fjárfestum:
Eignasafn 1 fjárfestir einungis í verðtryggðum og óverðtryggðum innlánum. Nánari upplýsingar um eignasafn 1 er að finna hér.
Eignasafn 2 fjárfestir í innlánum og ríkistryggðum verðbréfum. Nánari upplýsingar um eignasafn 2 er að finna hér.
Eignasafn 3 fjárfestir í innlánum og að litlu leyti í skuldabréfum og hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum. Nánari upplýsingar um eignasafn 3 er að finna hér.
Eignasafn 4 fjárfestir í innlánum og að nokkru leyti í skuldabréfum og hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum. Nánari upplýsingar um eignasafn 4 er að finna hér.
Eignasafn 5 fjárfestir í innlánum og að töluverðu leyti í skuldabréfum og hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum. Nánari upplýsingar um eignasafn 5 er að finna hér.
Hvaða stýring hentar mér?
Íslensk verðbréf leggja mikið upp úr því að viðskiptavinum líði vel með þá fjárfestingarstefnu sem valin er. Til að leggja mat á hentuga fjárfestingarstefnu notast Íslensk verðbréf við próf þar sem viðskiptavinur svarar nokkrum spurningum varðandi tilgang og umfang sparnaðarins. Prófið má taka hér.
Þjónusta við viðskiptavini í eignastýringu
Viðskiptavinir eignastýringar ÍV njóta margvíslegra kjara og þjónustu umfram almenna viðskiptavini. Þar má nefna:
- Ráðgjöf um eignasamsetningu
- Stýring sérfræðinga á verðbréfaeign
- Lægri viðskiptakostnaður við kaup og sölu á sjóðum
- Samráðsfundir þegar óskað er
- Aðgangur að sérfræðingum eignastýringar ÍV
- Viðskiptayfirlit á heimasíðu ÍV
- Yfirlit yfir ávöxtun safnsins og stöðu þess tvisvar á ári eða oftar ef óskað er
Nánari upplýsingar
Starfsmenn Íslenskra verðbréfa veita fúslega nánari upplýsingar í síma 460-4700 eða í netfangi iv@iv.is



