Íslensk verðbréf hf.

Samkomulag bráðabirgðastjórnar SPRON og Íslensk verðbréf tekur einnig til eignastýringar og vörslu og gildir frá 3. júní 2009. 

Eignastýring og varsla

Samkomulag bráðabirgðastjórnar SPRON og Íslensk verðbréf tekur einnig til eignastýringar og vörslu og gildir frá 3. júní 2009. 

 

Eignastýring

Eignastýring ÍV hefur að undanförnu sett sig í samband við þá viðskiptavini sem áður voru í eignastýringu hjá SPRON verðbréfum.  Eignir þeirra hafa nú þegar flust til Íslenskra verðbréfa sem mun, með samþykki viðskiptavinar, taka við stýringu eignanna skv. þeirri fjárfestingarstefnu sem áður var í gildi milli viðskiptavinar og SPRON Verðbréfa. 

Erfitt getur reynst að ná í þá viðskiptavini sem komnir eru í sumarfrí.  Hafir þú ekki heyrt frá okkur biðjum við þig að hafa samband að fyrra bragði við afgreiðslu okkar í síma 460 4700 og biðja um samband við eignastýringu.

Nánari upplýsingar um eignastýringu Íslenskra verðbréfa er að finna hér.

 

 

Varsla verðbréfa

Verðbréf viðskiptavina sem áður voru í vörslu SPRON eru nú í vörslu Íslenskra verðbréfa.  Engin önnur efnisleg breyting hefur átt sér stað og viðskiptavinir geta keypt eða selt verðbréf með sama hætti og áður, en nú í gegnum Íslensk verðbréf í stað SPRON Verðbréfa áður.

Rétt er að taka fram að verðbréf sem voru með handveð hafa ekki flust til Íslenskra verðbréfa, eru með öðrum orðum enn hjá SPRON.

 

 

Vefaðgangur að eignasafni

Viðskiptavinum er bent á að hægt er að sækja um aðgang að eignasafni hjá Íslenskum verðbréfum með því að skila inn útfylltu eyðublaði.  Aðgangurinn gerir viðskiptavinum kleift að skoða eignastöðu sína og hreyfingar og er þeim að kostnaðarlausu.  Nánari upplýsingar er að finna hér.

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf