Íslensk verðbréf leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð m.a. með því að styðja við bakið á íþróttafélögum og ýmissi forvarnartengdri starfsemi.
Á árunum 2008 til 2011 hafa Íslensk verðbréf einsett sér að styrkja sérstaklega við bakið á knattspyrnuiðkun enda telur félagið að með því sé bæði verið að hvetja til hollrar og góðrar hreyfingar auk þess sem forvarnargildi íþrótta er óumdeilanlegt.
Helstu aðilar sem Íslensk verðbréf styrkja fram til 2011 eru talin upp hér að neðan.
Meistaraflokkur Þórs/KA í knattspyrnu
Íslensk verðbréf hf. er einn af aðalstyrktaraðilum meistarflokks Þórs/KA í kvennaflokki í knattspyrnu á árunum 2008 til 2011. Leikmannahópur Þór/KA telur um 30 leikmenn og er að mestu byggt upp á heima stúlkum.
Árangur Þór/KA hefur farið stigvaxandi á síðustu árum. Árið 2006 lauk liðið keppni í 7. sæti úrvalsdeildar með 3 stig en árið 2007 varð 8. sæti í deildinni staðreynd og náði liðið að hala inn 13 stig. Liðið náði svo besta árangri sem það hefur náð frá sameiningu leiktíðina 2008 en þá lauk liðið keppni í 4 sæti deildarinnar með 29 stig.

Til gamans má geta þess að Rakel Hönnudóttir aðal markaskorari liðsins er fastamaður í A- landsliði Íslands. Hún var kjörin efnilegasti leikmaður Landsbankadeildar kvenna árið 2007 og hlaut silfurskóinn árið 2008.
Til viðbótar þessu er liðið með mjög sterkan 2. flokk þar sem tvær stúlkur hafa verið í U-17 og U-19 ára landsliði Íslands. Árið 2007 varð t.d. liðið Visabikarmeistari eftir sigur á KR á Akureyrarvelli.
Árið 2008 komst liðið í úrslitaleikinn en beið lægri hlut gegn Breiðablik á Kópavogsvelli, þess má geta að liðið lauk keppni í A-deild í 3. sæti.
Vorið 2009 gerði liðið sér lítið fyrir og vann Lengjubikarinn í A-deild í úrslitaleik á móti Stjörnunni sem verður að teljast frábær árangur.
Þjálfarar liðsins eru Dragan Stojanovic og Siguróli Kristjánsson.
Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri
Íslensk verðbréf hf. er einn af aðalstyrktaraðilum unglingaráðs knattspyrnudeildar Þórs á árunum 2008 til 2011.
Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs er fyrirmyndarfélag ÍSÍ og hefur það yfirumsjón með starfi yngri flokka félagsins, annast m.a. ráðningar þjálfara og markar stefnu fyrir starfsemi yngri flokka félagsins í knattspyrnu.

Unglingaráð Þórs hefur markað sér knattspyrnu- og uppeldisstefnu þar sem félags-, íþrótta- og uppeldisleg markmið eru höfð að leiðarljósi.
Í stefnunni er lögð áhersla á ánægju af knattspyrnuiðkun, markvissa áætlanagerð og árangur.
Lögð er áhersla á góð tengsl við foreldra iðkenda, vímuvarnir og fjölbreytta félagsstarfsemi í öllum flokkum, m.a. til að vinna gegn brottfalli úr íþróttaiðkun.
Yfir vetrarmánuðina eru iðkendur um þrjúhundruð og fimmtíu og yfir sumarmánuðina eru iðkendur um fjögurhundruð og fimmtíu. Iðkendum hefur fjölgað ár frá ári.
Nánari upplýsingar um starf unglingaráðs má finna á heimasíðu Þórs
Yngriflokkaráð knattspyrnudeildar KA
Íslensk verðbréf hf. er aðalstyrktaraðili yngriflokkaráðs KA í knattspyrnu á árunum 2008 til 2010. Yngriflokkaráð Knattspyrnufélags Akureyrar í knattspyrnu hefur yfirumsjón með rekstri yngri flokka félagsins.
Á fjórða hundrað börn og unglingar á aldrinum fjögurra til sextán ára - bæði stelpur og strákar - æfðu knattspyrnu hjá KA sumarið 2008.
Yfir vetrarmánuðina eru iðkendur á þriðja hundrað. Iðkendum hefur fjölgað ár frá ári. KA er fyrirmyndarfélag ÍSÍ, sem leggur félaginu ríkar skyldur á herðar varðandi menntun þjálfara, jafnrétti og margt fleira.
Allar nánari upplýsingar um starf yngri flokka KA í knattspyrnu er að finna á heimasíðu þeirra http://ka.fun.is/



