Íslensk verðbréf hf.

Í kjölfar falls íslenskra banka og margra fjármálafyrirtækja hafa tveir sjóðir Íslenskra verðbréfa hafið slitaferli.  Ferlið kemur til þar sem

Sjóðir í slitaferli

Í kjölfar falls íslenskra banka og margra fjármálafyrirtækja hafa tveir sjóðir Íslenskra verðbréfa hafið slitaferli.  Ferlið kemur til þar sem undirliggjandi eignir sjóðsins eru óseljanlegar. 

Þessu til viðbótar hefur Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. umsjón með slitaferli tveggja sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf.  Um er að ræða Stuttur skuldabréfasjóður og Langur skuldabréfasjóður.

Á þessari síðu birtum við fréttir um ofangreinda sjóði.  Hafir þú spurningar er þér velkomið að hafa samband við Íslensk verðbréf í síma 460 4700.  Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið iv@iv.is.   

Jafnframt bendum við á að hægt er að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu um að nýjar fréttir um valda sjóði hafi birst á heimasíðu Íslenskra verðbréfa.

 

Hvað þýðir að sjóður sé í slitaferli?

Sjóður fer í slitaferli í samráði við Fjármálaeftirlitið þegar ljóst er að eignir hans eru óseljanlegar.  Þetta á við um marga sjóði sem fjárfestu í skuldabréfum íslenskra fyrirtækja fyrir hrunið s.l. haust. 

Sjóður í slitaferli greiðir sjóðfélögum út í í samræmi við hlutfallslega eign þeirra eftir því sem eignir sjóðsins innheimtast eða eru seldar. Þegar engar eignir eru eftir í viðkomandi sjóði er honum slitið. 

Lokað er fyrir kaup og sölu hlutdeildarskírteina sjóða sem eru í slitaferli.

 

Stuttur skuldabréfasjóður (áður hjá Rekstrarfélagi SPRON hf.)

3. mars 2010

Gengi sjóðsins hækkaði um 1,6% í febrúar.  Varúðarniðurfærsla vegna Byrs og Exista var aukin töluvert en á móti kom lækkun niðurfærslu vegna Bakkavarar. Meginástæða hækkunar sjóðsins er þó tilkomin vegna sölu á víkjandi skuldabréfum á verði sem gaf mun betri endurheimtur en gert hafði verið ráð fyrir. 

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum og Eimskipafélagi Íslands.  Sjóðurinn hefur þegar selt hluta af hlutabréfum sínum í Eimskipafélaginu.

Vegna sölu fyrrgreindra skuldabréfa er áætlað að næsta greiðsla til sjóðfélaga fari fram nú í mars.  Áætlað er að greiðslan nemi um 9% af heildareignum sjóðsins.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar verðmæti einstakra eigna skýrist.

 

Greiðslur úr Stuttum skuldabréfasjóði hafa verið sem hér segir:

  • 10. febrúar 2009 voru greiddar út 20,70% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 24. júní 2009 voru greiddar út 14,64% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 17. september 2009 voru greiddar út 5,11% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     



Langur skuldabréfasjóður (áður hjá Rekstrarfélagi SPRON hf.)

3. mars 2010

Gengi sjóðsins hækkaði um 2,1% í febrúar.  Varúðarniðurfærsla vegna Byrs og Exista var aukin töluvert en á móti kom lækkun niðurfærslu vegna Bakkavarar. Meginástæða hækkunar sjóðsins er þó tilkomin vegna sölu á víkjandi skuldabréfum á verði sem gaf mun betri endurheimtur en gert hafði verið ráð fyrir. 

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum og Eimskipafélagi Íslands.  Sjóðurinn hefur þegar selt hluta af hlutabréfum sínum í Eimskipafélaginu.

Vegna sölu fyrrgreindra skuldabréfa er áætlað að næsta greiðsla til sjóðfélaga fari fram nú í mars.  Áætlað er að greiðslan nemi um 7% af heildareignum sjóðsins.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar mál skýrast varðandi verðmæti einstakra eigna.

 

Greiðslur úr Löngum skuldabréfasjóði hafa verið sem hér segir:

 

  • 24. júní 2009 voru greiddar út 24,89% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 17. september 2009 voru greiddar út 12,61% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     


Peningamarkaðssjóður ÍV

3. mars 2010

Gengi sjóðsins lækkaði um 5,7% í febrúar.  Varúðarniðurfærsla vegna Byrs og Exista var aukin töluvert en á móti kom lækkun niðurfærslu vegna Bakkavarar. 

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum og Eimskipafélagi Íslands.  Sjóðurinn hefur þegar selt hluta af hlutabréfum sínum í Eimskipafélaginu.

Erfitt er að segja fyrir um hvenær næsta greiðsla til sjóðfélaga getur orðið en flest bendir til að það verði ekki fyrr en á vormánuðum.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar mál skýrast varðandi verðmæti einstakra eigna.

 

Greiðslur úr Peningamarkaðssjóði ÍV hafa verið sem hér segir:

  • 12. júní 2009 voru greiddar út 6,31% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 18. nóvember 2009 voru greiddar út 14,59% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     



Skuldabréfasjóður ÍV

3. mars 2010

Gengi sjóðsins hækkaði um 0,6% í febrúar.  Varúðarniðurfærsla vegna Byrs var aukin töluvert en á móti kom lækkun niðurfærslu vegna Bakkavarar.  

Mál nokkurra skuldara hafa verið að ná endanlegri niðurstöðu eða eru við það að ná slíkri niðurstöðu.  Í flestum tilfellum fær sjóðurinn í sinn hlut hlutabréf í viðkomandi félögum sem leitast verður við að koma í verð.

Nú þegar hefur sjóðurinn fengið í sinn hlut hlutabréf í Stoðum og Teymi.

Erfitt er að segja fyrir um hvenær næsta greiðsla til sjóðfélaga getur orðið en flest bendir til að það verði ekki fyrr en á vormánuðum.

Sem fyrr er mat á eignum sjóðsins háð mikilli óvissu þar sem ekki er virkur markaður með þær og staða margra skuldara óljós.  Gengi sjóðsins kann því að breytast þegar mál skýrast varðandi verðmæti einstakra eigna.

 

Greiðslur úr Skuldabréfasjóði ÍV hafa verið sem hér segir:

  • 12. janúar 2009 voru greiddar út 13,06% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 5. júní 2009 voru greiddar út 11,97% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 17. september 2009 voru greiddar út 15,27% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

  • 17. nóvember 2009 voru greiddar út 17,25% af eignum sjóðsins eins og þær voru metnar á þeim tíma.

     

 

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf