Íslensk verðbréf hf.

Almennt Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. hefur tekið við rekstri verðbréfasjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf. 

Sjóðir Rekstrarfélags SPRON hf

Almennt

Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. hefur tekið við rekstri verðbréfasjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf.  Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. var stofnað árið 2002 og hefur því allt að 7 ára reynslu í stýringu sambærilegra sjóða og nú flytjast yfir frá Rekstrarfélagi SPRON hf.

 

Samhliða þessu hafa Íslensk verðbréf tekið við vörslu eigna sjóðanna, sem áður voru í vörslu SPRON.  Stýring sjóðanna verður áfram innan þeirrar fjárfestingarstefnu sem sjóðirnir hafa haft samkvæmt útboðslýsingu og reglum þeirra.

 

 

Spurt og svarað

Viðbúið er að ofangreind breyting veki spurningar hjá viðskiptavinum SPRON.  Til að svara þeim algengustu höfum við tekið saman spurt og svarað lista sem nálgast má hér (pdf).

Við bendum viðskiptavinum jafnframt á að hægt er að hafa samband við Íslensk verðbréf í síma 460 4700 með spurningar ef einhverjar eru.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið iv@iv.is

 

 

Staða sjóða er eftirfarandi:

 

Heiti sjóðs Staða Athugasemdir
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa Lokað fyrir kaup og sölu Opið fyrir kaup og innlausnir
Stýrður hlutabréfasjóður Lokað fyrir kaup og sölu Opið fyrir kaup og innlausnir
Íslenskur hlutabréfasjóður Lokað fyrir kaup og sölu Opið fyrir kaup og innlausnir
BRIK hlutabréfasjóður Lokað fyrir kaup og sölu Opið fyrir innlausnir
Alþjóðlegur hlutabréfasjóður Lokað fyrir kaup og sölu Opið fyrir innlausnir
Langur skuldabréfasjóður Í slitaferli - lokað fyrir kaup og sölu    Í slitaferli frá maí 2009
Stuttur skuldabréfasjóður Í slitaferli - lokað fyrir kaup og sölu Í slitaferli frá mars 2009

Ath: Hægt er að smella á nöfn ofangreindra sjóða til að sjá nánari upplýsingar um þá, s.s. fjárfestingarstefnu og verðbreytingar.

 

 

Vefaðgangur að eignasafni

Hlutdeildarskírteinishafar hafa nú fengið í hendurnar bréf frá Íslenskum verðbréfum með kynningu á félaginu svo og upplýsingar um aðgangs- og lykilorð fyrir vefaðgang að eignasafni viðkomandi viðskiptavinar.  Með þessu geta viðskiptavinir skráð sig inn á vef Íslenskra verðbréfa og séð eign sína í einstökum sjóðum.

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf