Íslensk verðbréf hf.

Samningur um vörslureikning  Íslensk verðbréf bjóða þér að stofna vörslureikning hjá Verðbréfaskráningu Íslands vegna tilkomu rafrænnar

Skilmálar og eyðublöð

Samningur um vörslureikning 

Íslensk verðbréf bjóða þér að stofna vörslureikning hjá Verðbréfaskráningu Íslands vegna tilkomu rafrænnar eignaskráningar hlutabréfa og skuldabréfa.

Nauðsynlegt er að fylla út vörslusamning (pdf) og senda til Íslenskra verðbréfa undirritaðan. Ef þig vantar nánari upplýsingar hafðu þá samband á iv@iv.is eða í síma 460-4700



 

Samningur um aðgang að eignasafni

Viðskiptavinum Íslenskra verðbréfa býðst að stofna vefaðgang að eignasafni.  Aðgangurinn gefur upplýsingar um eignastöðu og viðskipti aftur í tímann og er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Til að stofna vefaðganginn þarf að fylla út umsókn (pdf) og senda hana til Íslenskra verðbréfa að Strandgötu 3, 600 Akureyri.  Þegar frumrit umsóknar hefur borist er útbúið notendanafn og lykilorð og það sent viðskiptavini í framhaldinu.

 

 

MiFID eyðublað

Þann 1. nóvember 2007 voru innleidd ný lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Með lögum þessum voru færð í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID).

Með lögum þessum breyttust ýmsar mikilvægar reglur varðandi það hvernig staðið skuli að verðbréfaviðskiptum. Samkvæmt lögunum þurfa viðskiptavinir Íslenskra verðbréfa að fylla út svokallað MiFID eyðublað (pdf).

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf