Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og er staðsett á Akureyri. Starfsmenn eru 22 talsins og búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á verðbréfamarkaði samfara fjölbreyttri menntun.
Félagið er til heimilis að Strandgötu 3, Akureyri og skrifstofan er opin frá kl. 9 til 16 alla virka daga.
Íslensk verðbréf eru jafnframt með skrifstofu í Reykjavík að Sigtúni 42 sem þjónar viðskiptavinum félagsins á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofan er opin frá 9 til 12 og 12:30 til 16. Starfsmenn þar eru Atli Örn Jónsson, Brynjar Sigurðarson og Stefán Þórðarson.
Viðskiptavinir Íslenskra verðbréfa eru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, tryggingarfélög, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar. Eignir í stýringu námu um 95 milljörðum króna í árslok 2009.
Sérstaða
- Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki. Það þýðir að öll starfsemi félagsins miðar að því að ná hámarksárangri á sviði eignastýringar. Félagið sinnir ekki útlánastarfsemi, fyrirtækjaráðgjöf eða annarri álíka þjónustu heldur einbeitir sér að öflugri eignastýringu.
- Einu fjárfestingar Íslenskra verðbréfa fyrir eigin reikning eru í sjóðum félagsins. Með öðrum orðum keppir félagið ekki við viðskiptavini sína um þau tækifæri sem bjóðast á markaðinum hverju sinni. Með þessu er komið í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra milli félagsins annars vegar og viðskiptavina hins vegar.
- Íslensk verðbréf eru óháð eignastýringarfyrirtæki og eignarhald tengist ekki stærri aðilum á markaðinum, s.s. Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka eða Kaupþingi.
Eignarhald og stjórn
Íslensk verðbréf eru í eigu lífeyrissjóða, sparisjóða og annarra fagfjárfesta. Stærsti einstaki hluthafinn er Byr sparisjóður (27%, áður í eigu Sparisjóðs Norðlendinga fyrir sameiningu við BYR árið 2007).
Þar á eftir kemur Íslensk eignastýring hf (22%), Stapi lífeyrissjóður (15%), Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (15%) og Lífeyrissjóður Vestfirðinga (10%). Aðrir hluthafar eiga minna. Lista yfir þá hluthafa sem eiga 5% eignarhlut eða meira er að finna hér (pdf).
Stjórn félagsins skipa Kári Arnór Kárason (stjórnarformaður), Jón G. Kristjánsson og Eggert Þór Aðalsteinsson.
Eignastýring fyrir einstaklinga og fagfjárfesta
Íslensk verðbréf bjóða upp á fjölbreytta eignastýringu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og fagfjárfesta þar sem þess er gætt að hver og einn finni eignastýringarleið við sitt hæfi. Hér er að finna nánari upplýsingar um eignastýringu ÍV.
Mannauður
Hjá Íslenskum verðbréfum starfar hópur fólks með mikla reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Meðalaldur starfsmanna í lok árs 2009 er 39 ár og stór hluti þeirra hefur unnið hjá félaginu í 10 ár eða lengur.
Menntun starfsmanna er jafnframt fjölbreytt, þ.á.m. hagfræðimenntun, lögfræðimenntun, viðskiptafræðimenntun og sjávarútvegsfræðimenntun svo fátt eitt sé nefnt.
Hér er að finna nánari upplýsingar um starfsfólk Íslenskra verðbréfa



