Samkomulag um þjónustu, vörslu og eignastýringu
Bráðabirgðastjórn SPRON hefur gert samkomulag við Íslensk verðbréf (ÍV) um að taka að sér þjónustu við viðskiptavini sem áður voru hjá SPRON og SPRON Verðbréfum.
Samhliða þessu hefur verið samið um að Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. taki við rekstri sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf. Fjármálaeftirlitið hefur þegar veitt samþykki sitt fyrir ofangreindu.
Markmið samkomulagsins, sem gildir frá 3. júní 2009, er að koma þjónustu við viðskiptavini SPRON og SPRON Verðbréfa í eðlilegt horf sem fyrst.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar er að finna á síðunum "Sjóðir" og "Eignastýring og varsla" sem nálgast má í valmynd hér til hliðar.
Viðskiptavinum er bent á að hafa samband við Íslensk verðbréf í síma 460 4700 með fyrirspurnir, einnig má senda tölvupóst á iv@iv.is auk þess sem fréttir þessu tengdu verða uppfærðar reglulega á þessari heimasíðu.



