Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf þjónusta nú þegar fjölda verkalýðsfélaga, stéttarfélaga og annarra sjóða á sviði eignastýringar.   Í eðli sínu eru þessir

Verkalýðsfélög og sjóðir

Íslensk verðbréf þjónusta nú þegar fjölda verkalýðsfélaga, stéttarfélaga og annarra sjóða á sviði eignastýringar.   Í eðli sínu eru þessir fjárfestar varkárir og í því skyni hafa verið útbúnar þrjár fjárfestingarleiðir sem hver um sig leggur áherslu á varkárni og öryggi þó í mismiklum mæli sé.

Um hver mánaðarmót er jafnframt gefinn út einblöðungur fyrir eignasöfn A til C þar sem sjá má hver eignasamsetning hverrar leiðar er.  Nýjasta einblöðunginn má nálgast hér (pdf).  

Minnum jafnframt á að hægt er að fá alla einblöðunga ÍV senda sjálfkrafa um hver mánaðarmót með því að skrá sig á póstlista hjá ÍV.

Nánari upplýsingar um Eignasafn A til C er að finna hér fyrir neðan.


Eignasafn A

Eignasafn A er fremur varfærið og fjárfestir að lágmarki 50% skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs Íslands og innlánum.  Verulegar takmarkanir eru á fjárfestingum í öðrum eignaflokkum, t.a.m. má einungis fjárfesta 20% af safninu í hlutabréfum.

Nánari fjárfestingarstefna Eignasafns A er eftirfarandi:


Eignaflokkur Fjárfestingarheimild
Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs  
20 til 100%
Innlán
0 til 80%
Önnur innlend skuldabréf
0 til 20%
 Hlutabréf 0 til 20% (þar af allt að 5% innlend)
 Erlend skuldabréf
0 til 10%




Eignasafn B

Eignasafn B hefur tiltölulega víðar fjárfestingarheimildir og markmið þess er að gefa góða ávöxtun til lengri tíma.  Safnið getur  fjárfest allt að 50% í hlutabréfum og 25% í erlendum skuldabréfum.  Ávöxtun Eignasafns B getur sveiflast nokkuð til skemmri tíma.

Fjárfestingarstefna Eignasafns B er eftirfarandi:

 
Eignaflokkur Fjárfestingarheimild
Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs  
0 til 100%
Innlán
0 til 100%
Önnur innlend skuldabréf
0 til 30%
 Hlutabréf 0 til 50% (þar af allt að 10% innlend)
 Erlend skuldabréf
0 til 25%



Eignasafn C

Eignasafn C er varfærið og fjárfestir að lágmarki 70% í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum.  Áhætta safnsins er takmörkuð og því er ætlað að gefa nokkuð jafna ávöxtun.

Fjárfestingarstefna Eignasafns C er eftirfarandi:

 
Eignaflokkur Fjárfestingarheimild
Verðbréf með ábyrgð ríkissjóðs  
30 til 100%
Innlán
0 til 50%
Önnur innlend skuldabréf
0 til 30%
 Hlutabréf Ekki heimil
 Erlend skuldabréf
Ekki heimil

 

Þjónusta

Fjárfestar hafa á hverjum tíma aðgang að eignasafni sínu á vef iv.is þar sem hægt er að sjá eignastöðu sem og þau viðskipti sem hafa átt sér stað frá því að safnið var stofnað.

Fjárfestar hafa einnig aðgang að sérfræðingum Íslenskra verðbréfa í gegnum síma og tölvupóst og öllu jöfnu er hægt að koma á fundi með litlum fyrirvara.

Lögð er áhersla á persónuleg samskipti og horft til lengri tíma samstarfs á sviði ávöxtunar.




Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um eignasöfn A til C veita starfsmenn Íslenskra verðbréfa í síma 460 4700 eða með tölvupósti á netfangið iv@iv.is. 

Kynningarfundir með stjórnum eða framkvæmdastjórum sjóða er jafnframt í boði endurgjaldslaust. 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf