Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa

Um Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa

Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.  

Sjóðurinn er traustur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni til meðallangs eða langs tíma.

Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 5-7 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast nokkuð við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði.

Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru húsbréf, húsnæðisbréf, spariskírteini, ríkisbréf og ríkisvíxlar.

 

Fyrir hverja?

Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er hún einkum ætluð fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til millilangs eða langs tíma.

Einnig hentar sjóðsdeildin fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hennar eru ríkistryggðar.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf