Um Ríkisskuldabréfasjóð ÍV
Ríkisskuldabréfasjóður ÍV er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Sjóðurinn er traustur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni til lengri tíma. Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 6-12 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast töluvert við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru húsbréf, húsnæðisbréf, spariskírteini, ríkisbréf og ríkisvíxlar.
Fyrir hverja?
Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er hún einkum ætluð fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til lengri tíma.
Einnig hentar sjóðsdeildin fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hennar eru ríkistryggðar.




