Um Alþjóðlegan hlutabréfasjóð
Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er sjóðasjóður sem fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum.
Markmið hans er að skila fjárfestum langtímaávöxtun og áhættudreifingu. Fjárfest er í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum virtra sjóðastýringafyrirtækja.
Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.
Fjárfestingarstefna
Alþjóðlegur hlutabréfasjóður fjárfestir í erlendum verðbréfasjóðum og öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Sjóðurinn fjárfestir að meginstefnu til í heimssjóðum (Global Funds).
Fyrir hverja
Sjóðurinn hentar þeim sem kjósa að fjárfesta á alþjóðlegum mörkuðum og vilja dreifa áhættunni í stað þess að fjárfesta í einstöku erlendu hlutafélagi. Æskilegt er að hugsa fjárfestingu í sjóðnum til lengri tíma og felur hún í sér töluverða áhættu.




