Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður

Um Alþjóðlegan hlutabréfasjóð

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.  Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er sjóðasjóður sem fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum.

Markmið hans er að skila fjárfestum langtímaávöxtun og áhættudreifingu. Fjárfest er í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum virtra sjóðastýringafyrirtækja.

Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður fjárfestir í erlendum verðbréfasjóðum og öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Sjóðurinn fjárfestir að meginstefnu til í heimssjóðum (Global Funds).

 

Fyrir hverja

Sjóðurinn hentar þeim sem kjósa að fjárfesta á alþjóðlegum mörkuðum og vilja dreifa áhættunni í stað þess að fjárfesta í einstöku erlendu hlutafélagi. Æskilegt er að hugsa fjárfestingu í sjóðnum til lengri tíma og felur hún í sér töluverða áhættu.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf