Um BRIK hlutabréfasjóð
BRIK hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Sjóðurinn fjárfestir að meginstefnu í heimssjóðum sem fjárfesta aðallega í hlutabréfum hlutafélaga sem skráð eru í kauphöllum í Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína.
Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.
Fjárfestingarstefna
BRIK hlutabréfasjóður fjárfestir í eftirfarandi eignaflokkum:
- Verðbréfasjóðir sem fjárfesta í hlutabréfum skráðum í Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína (40-100%)
- Verðbréfasjóðir sem fjárfesta í hlutabréfum skráðum í öðrum löndum en Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína (0-60%)
- Aðrir sjóðir um sameiginlega fjárfestingu (Non-UCITS) sem fjárfesta í skráðum hlutabréfum (0-30%)
Fyrir hverja
Sjóðurinn hentar þeim sem kjósa að fjárfesta á mörkuðum sem sveiflast töluvert meira en markaðir í Evrópu eða Bandaríkjunum. Áhætta er mikil en vænt ávöxtun jafnframt meiri. Sjóðurinn er kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fé til langs tíma.




