Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

BRIK hlutabréfasjóður

Um BRIK hlutabréfasjóð

BRIK hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. 

Sjóðurinn fjárfestir að meginstefnu í heimssjóðum sem fjárfesta aðallega í hlutabréfum hlutafélaga sem skráð eru í kauphöllum í Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína.

Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

BRIK hlutabréfasjóður fjárfestir í eftirfarandi eignaflokkum:

  • Verðbréfasjóðir sem fjárfesta í hlutabréfum skráðum í Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína (40-100%)
  • Verðbréfasjóðir sem fjárfesta í hlutabréfum skráðum í öðrum löndum en Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og Kína (0-60%)
  • Aðrir sjóðir um sameiginlega fjárfestingu (Non-UCITS) sem fjárfesta í skráðum hlutabréfum (0-30%)

 

Fyrir hverja

Sjóðurinn hentar þeim sem kjósa að fjárfesta á mörkuðum sem sveiflast töluvert meira en markaðir í Evrópu eða Bandaríkjunum. Áhætta er mikil en vænt ávöxtun jafnframt meiri. Sjóðurinn er kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fé til langs tíma.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf